Hópur fólks, sem hefur tekið þátt í mótmælaaðgerðum á Lækjartorgi í kvöld, reyndi á ný að kveikja eld en slökkviliðsmenn slökktu strax í bálkestinum. Nokkrir tugir manna eru á torginu en þar eru einnig margir lögreglumenn og bílar. Hefur lögregla fært nokkra úr hópi mótmælenda inn í lögreglubíla og þurft að beita kylfum.