Um 40% bíla í Reykjavík voru á negldum hjólbörðum í febrúarbyrjun og hafa þeir aldrei verið færri á þessum árstíma. Framkvæmda- og eignasvið hefur látið telja reglulega undanfarin ár. Fyrir tveimur árum voru um 50% bíla á nelgdum hjólbörðum og fyrir fjórum árum voru þeir um 60%.
Á heimasíðu framkvæmdasviðsins segir, að nagladekk auki verulega slit á malbiki og valdi með því heilsuspillandi svifryksmengun sem þurfi að bregðast við með aukinni hreinsun gatna. Þá sé talið að draga megi úr endurmalbikun gatna sem nemur 10.000 tonnum árlega, ef notkun nagladekkja dregst verulega saman.