Landspítali Hringbraut hefur verið lýstur upp í rauðum lit. Það tengist átaki sem verkefnahópurinn GoRed á Íslandi stendur fyrir næstu vikurnar. GoRed fyrir konur á Íslandi er alþjóðlegt forvarnarverkefni vegna hjarta- og æðasjúkdóma á vegum World Heart Federation.
Stjórn átaksins og framkvæmd er í samvinnu við Hjartavernd. Átakið hefst sunnudaginn 22. febrúar á konudaginn en þá verður kynningarfundur í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Hjarta-og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annars staðar í heiminum. GoRed átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga megi úr líkum á sjúkdómunum, að því er fram kemur á vef Landspítalans.