Stjórn Nýja Kaupþings hefur selt lúxusbílaflota bankans með miklum afslætti, að því er kom fram í fréttum Stöðvar 2. Sagði fréttastofan, að bílarnir, sem voru um 50 talsins, hefðu verið metnir á 400 milljónir króna, en söluverðið hefði samtals verið um 100 milljónir.
Haft var eftir Finni Sveinbjörnssyni, bankastjóra Kaupþings, að hann vildi ekki staðfesta þetta heldur hefðu bílarnir verið seldir með 30% afslætti að meðaltali. Nauðsynlegt hefði verið að gefa afslátt vegna þess að markaður fyrir dýra bíla væri hruninn.