Lýsa áhyggjum af niðurskurði

Landspítali.
Landspítali.

Hjúkrunarráð Landspítalans lýsir yfir miklum áhyggjum á fyrirhuguðum samdráttaraðgerðum á Landspítala. Einkum segist hjúkrunarráð hafa áhyggjur af áhrifum þess að fækka hjúkrunarfræðingum og öðrum starfsmönnum í hjúkrun.

„Víða er mikil sérþekking í hjúkrun ákveðinna sjúklingahópa en hún stuðlar að betri þjónustu, auknum gæðum og síðast en ekki síst aukins öryggis sjúklinga. Hjúkrunarráð telur að við fækkun eða tilfærslu starfsfólks innan hjúkrunar muni þessi sérþekking tapast og þannig ógna öryggi sjúklinga og skerða þjónustu," segir í ályktun frá hjúkrunarráði Landspítala.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert