Starfshópur á vegum forsætisráðuneytisins hefur á síðustu dögum unnið markvisst að því að finna leiðir til að bæta upplýsingastreymi stjórnvalda þar sem lögð er áhersla á gagnsæi og lifandi upplýsingagjöf. Segir í tilkynningu frá ráðuneytinu, að þetta verði gert með tilkynningum, með fundum, svörun fyrirspurna og miðlun efnis á vefjum stjórnarráðsins.
Dagskrá ríkisstjórnarfunda verður gerð aðgengilegri og sömuleiðis blaðamannafundir stjórnvalda. Þá verður uppfærð verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar með ítarefni aðgengileg í heild sinni á netinu frá og með deginum í dag.
Verkefnaskráin verður uppfærð eins oft og þörf er og hún gefur öllum kost á að fylgjast með því hvað ríkisstjórnin er að fást við og hvernig verkum hennar miðar.
Um leið verða upptökur af vikulegum blaðamannafundum ríkisstjórnarinnar aðgengilegar í gegnum vefinn. Fundirnir eru haldnir í Þjómenningarhúsinu og þar sitja forsvarsmenn stjórnarinnar, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra fyrir svörum.
ppfærð verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar: www.island.is/efnahagsvandinn/adgerdir-stjornvalda/yfirlit-adgerda
Upptökur af fréttamannafundum: http://stjornarrad.is/fyrir_fjolmidla/frettamannafundir
Upplýsingaveita stjórnvalda á ensku: www.iceland.org