Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur boðað til fréttamannafundar í dag klukkan 15. þar sem hann mun kynna endurskoðun ákvörðunar um hvalveiðar.
Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, gaf út reglugerð um veiðikvóta á hrefnu og langreyði til næstu fimm ára en Steingrímur lýsti því yfir, þegar hann tók við embætti, að sú ákvörðun yrði endurskoðuð.