CCP með flesta starfsmenn við höfnina

Fjölbreytt starfsemi er við Reykjavíkurhöfn.
Fjölbreytt starfsemi er við Reykjavíkurhöfn. mbl.is/RAX

Tölvuleikjafyrirtækið CCP er með flesta starfsmenn fyrirtækja við Gömlu höfnina í Reykjavík. Næst flestir vinna hjá HB Granda, en þá er einungis átt við þá sem sækja vinnu á hafnarsvæðinu sjálfu. Þekkingarfyrirtækið er því orðið stærra en stærsta fiskvinnslan á hinu gamalgróna hafnarsvæði. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um atvinnustarfsemi við Gömlu höfnina í Reykjavík.

Í sex fyrirtækjum á hafnarsvæðinu vinna 50 manns eða fleiri. Flestir starfsmenn eru í fyrirtækinu sem Félag viðskipta- og hagfræðinga útnefndu á dögunum þekkingarfyrirtæki ársins 2009, CCP, alls 220. Næstflestir starfsmenn eru í HB Granda, 140, og síðan koma Skeljungur og Toppfiskur (80 starfsmenn á hvorum stað), Lýsi með 65 starfsmenn og Stálsmiðjan með 50-60 starfsmenn.

Í hliðstæðri könnun árið 2004 var HB Grandi í efsta sæti á sambærilegum lista og þar á eftir kom Skeljungur. Tekið skal fram að einungis er hér talað um þá sem sækja vinnu á hafnarsvæðinu sjálfu. Sjómenn fyrirtækja þar eru ekki taldir með og heldur ekki þeir sem vinna tímabundið eða eru í hlutastörfum í Gömlu höfninni.

Fyrirtækjum á gamla hafnarsvæðinu í Reykjavík hefur í heild fjölgað verulega frá því árið 2004. Störfum í flestum atvinnugreinum hefur þannig fjölgað þar í þjónustu, verslun, veitingarekstri og fleiri atvinnugreinum en fækkað hins vegar í fiskvinnslu, útgerð og heildsölu.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um atvinnustarfsemi í Gömlu höfninni í Reykjavík sem Sigríður Kr. Kristþórsdóttir tók saman fyrir Faxaflóahafnir. Sigríður heimsótti flest fyrirtækin og lagði spurningar fyrir forsvarsmenn þeirra til að afla upplýsinga. Hún fjallar um niðurstöður vettvangskönnunar sinnar á almennum kynningarfundi vegna hugmyndasamkeppni um heildarskipulag Gömlu hafnarinnar í Loftkastalanum kl 17:00 í dag.

Alls starfa liðlega 1.600 manns í 167 fyrirtækjum í Gömlu höfninni, þar af eru fjórir af hverjum tíu í störfum tengdum sjávarútvegi. Reykjavík er því enn mikilvægur sjávarútvegsbær og hlutur Reykjavíkurhafnar í þeirri mikilvægu atvinnugrein landsmanna hefur síst minnkað á allra síðustu árum. Þá ályktun má draga af eftirfarandi upplýsingum úr skýrslunni:

Fiskveiðiárið 2007/2008 var 13,5% heildaraflamarks landsmanna úthlutað til skipa sem skráð voru í Reykjavík og hlutur Reykjavíkurhafnar í þeim efnum var stærri en allra annarra hafna. Þetta hlutfall var lægst fiskveiðiárið1997/1998 eða 8%. Árið 2008 var 19% af öllum veiddum botnfiski Íslendinga landað í Reykjavík en sambærilegt hlutfall var 15% árið 2004. Árið 2007 voru um 17% botnfisks á landinu unnin í Gömlu höfninni en þetta hlutfall var um 12% árið 1994.

Fjölgun fyrirtækja, og þar með fjölgun starfsmanna, í Gömlu höfninni hefur eðlilega orðið til að bílum fjölgar þar  með tilheyrandi umferðarþunga og þörf fyrir fleiri bílastæði. Í skýrslunni nefna ráðamenn fyrirtækja í Gömlu höfninni bílastæðaskort sem helsta vandamálið, einkum á Grandagarði. Sérstaka athygli vekur að viðmælendur skýrsluhöfundar við Fiskislóð nefna hins vegar hraðakstur, jafnvel ofsaakstur og kappakstur á kvöldin, sem meiri vanda en skort á bílastæðum.


Atvinnulífið við höfnina er að breytast.
Atvinnulífið við höfnina er að breytast. mbl.is/Golli
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert