Alls eru 15.816 einstaklingar skráðir á atvinnuleysisskrá á vef Vinnumálastofnunar, 10.058 karlar og 5.758 konur. Þar af eru 10.378 skráðir á höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar verður að hafa í huga að sá hópur sem er á á hlutabótum á móti hlutastarfi fer sífellt stækkandi. Um þessar mundir er fjöldi þeirra sem eru á hlutabótum á móti hlutastarfi á milli 2.000 og 2.500.
Í skýringum á vef Vinnumálastofnunar kemur fram að í töflunni sem er birt á vef stofnunnar eru allir sem skráðir hafa verið í daglegan gagnagrunn um atvinnulausa/fólk í atvinnuleit. Gera verður ráð fyrir að þar af séu nálægt 1.000 manns sem ekki eru í atvinnuleit vegna breyttra aðstæðna eftir að þeir skráðu sig, en upplýsingar um slíkt berast Vinnumálastofnun yfirleitt ekki fyrr en um eða upp úr mánaðarmótum.