Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 13. febrúar til og með 19. febrúar 2009 var 29. Þar af voru 22 samningar um eignir í fjölbýli, 3 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 711 milljónir króna og meðalupphæð á samning 24,5 milljónir króna.
Á sama tíma var 7 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 4 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 146 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,9 milljónir króna.
Á sama tíma var 6 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli og 4 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 140 milljónir króna og meðalupphæð á samning 23,3 milljónir króna.
Á sama tíma var 1 kaupsamningi þinglýst á Árborgarsvæðinu. Það var samningur um sérbýli, samkvæmt vef Fasteignaskrár Íslands.