„Sjávarútvegsráðherra ætti nú þegar að gefa út 50 til 70 þúsund tonna loðnukvóta. Það er vel innan skekkjumarka og setur stofninn ekki á hliðina. Ástandið í þjóðfélaginu er þannig að ráðherra getur ekki leyft sér að hafast ekki að, það skiptir hver einasta króna máli,“ segir Lárus Grímsson, skipstjóri á Lundey NS.
Lárus segir engan tala um að það séu fleiri hundruð þúsund tonn af loðnu í sjónum, eins og var á árum áður, en loðnan sé í miklu meira magni en fræðingar vilji viðurkenna. Lárus segir sorglegt að ekki hafi þegar verið gefinn út 50 til 70 þúsund tonna loðnukvóti.
Áhöfnin á Lundey NS fór til loðnuveiða út af Reykjanesi í nótt og fengust þar 1.250 tonn af loðnu í þremur köstum. Skipið er nú á leiðinni til Vopnafjarðar þar sem loðnan fer til hrognatöku, í frystingu og bræðslu.
Lárus segir að hrognafyllingin í loðnunni sé um 25-26% og hlutfall hrygnu og hængs í aflanum sé jafnt. Lundey NS verður á Vopnafirði á sjötta tímanum í dag og hefst þá langþráð hrognavinnsla í fiskiðjuveri HB Granda. Stefnt er að því að Faxi RE fari til veiða á morgun og Ingunn AK á mánudag ef veðurspáin gengur eftir en loðnuafla allra skipanna verður landað á Vopnafirði.