Heldur róleg nótt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, miðað við helgi. Hafði hún afskipti af þremur líkamsárásarmálum en að hennar sögn var um minniháttar pústra að ræða.
Nokkuð var um þjófnaði og innbrot, sérstaklega í bíla sem lögregla segir að virðist fylgja ástandinu í þjóðfélaginu. Þá voru þrír teknir ölvaðir við akstur.