FÉSTA: Leiga hækkar ekki

Íbúðir FÉSTA á Akureyri eru m.a. í þessu stórhýsi við …
Íbúðir FÉSTA á Akureyri eru m.a. í þessu stórhýsi við Tröllagil. mbl.is/Margrét Þóra

Stjórn Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri (FÉSTA) hefur ákveðið að næstu þrjá mánuði muni leiga á húsnæði stofnunarinnar ekki hækka.

Í tilkynningu frá stjórn FÉSTA kemur fram að stjórnin hafi fundað um ástandið á leigumarkaðnum, vegna kröfu stúdenta. „Ljóst er að leiguverð á almennum markaði hefur lækkað undanfarið og er í sumum tilfellum orðið sambærilegt leigu hjá FÉSTA og hægt er að finna dæmi um enn meiri lækkun. Við þessu vill stjórn FÉSTA bregðast með eftirfarandi aðgerðum: Næstu þrjá mánuði mun leiga ekki fylgja vísitölu neysluverðs, þ.e. leiga mun ekki hækka. Eftir þann tíma verður farið yfir stöðuna á ný.“

Stjórn FÉSTA segir góðar líkur á því að Akureyrarbær taki upp sérstakar húsaleigubætur til þeirra tekjulægstu. Endanleg ákvörðun um það verði tekin hjá bænum á næstunni og vonast til þess að það geti komið til framkvæmda með vorinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert