Á fundi framkvæmda- og eignaráðs í dag var tillaga fulltrúa Vinstri grænna og Samfylkingar um að óska eftir viðræðum við Höfðatorg ehf. um endurskoðun á leigusamningi vegna húseignarinnar við Borgartún 12-14 samykkt samhljóða.
Í greinargerð með tillögunni kemur fram að mánaðargreiðslur til leigusala séu um 3000 krónur á fermetra, eða 38,2 milljónir á mánuði. Í upphaflegum samningi hafi verið gert ráð fyrir að greiddar yrðu 1850 krónur fyrir fermetrann, og hafi þá mörgum þótt nóg um. Hækkunin sé fyrst og fremst til komin vegna hækkunar á byggingarvísitölu.
„Nú, þegar við blasir stórkostlegur niðurskurður á öllum sviðum borgarinnar og laun starfsfólks eru til endurskoðunar á sama tíma og verslunar- og skrifstofuhúsnæði stendur autt víðsvegar um borgina, er brýnt að endurskoða hvernig rekstur borgarinnar verði hýstur með sem hagkvæmustum hætti. Því er mikilvægt að samningur við Höfðatorg ehf um Höfðatorg verði tekinn til gagngerrar endurskoðunar með það að markmiði að draga úr kostnaði," segir í greinargerð með tillögunni.