70 fyrirtæki gjaldþrota í janúar

Í janúar 2009 voru 70 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 41 fyrirtæki í janúar 2008, sem jafngildir tæplega 71% aukningu á milli ára.

Þetta jafngildir því að rúmlega 3 fyrirtæki hafi að jafnaði verið úrskurðuð gjaldþrota hvern einsta virka dag janúarmánaðar en 21 virkur dagur var í janúar.

Á vef Hagstofunnar segir að flest gjaldþrot eða 18 hafi verið í Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og 13 í heild- og smásöluverslun, viðgerðum á vélknúnum ökutækjum.

Frétt Hagstofunnar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert