Ákæra á hendur Jóni Ásgeiri þingfest í héraði

Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur. mbl.is/Þorkell

Mál ákæruvaldsins á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Kristínu Jóhannesdóttur, Tryggva Jónssyni, Baugi Group og Gaumi, vegna meintra skattalagabrota, var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Verjendur sakborninganna kröfðust frávísunar fyrir dómi og fengu þeir frest til að skila inn greinargerð. Málið verður tekið fyrir 13. mars nk.

Jón Ásgeir, Kristín og Tryggvi voru öll viðstödd þingfestinguna í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert