Hefur afgreitt færri frumvörp

Birgir Ármannsson.
Birgir Ármannsson.

Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það ekki rétt sem kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í gær að nýja stjórnin hefði afgreitt 24 til 25 lagafrumvörp á Alþingi, sem nú væru í höndum þingsins.

„Mér telst svo til að þetta séu 9 frumvörp en ekki 24-25. Þess ber að geta að flest þessara mála hafa fengið fremur hraða afgreiðslu frá því þau komu fram enda ekki mikil ágreiningsmál,“ skrifar Birgir og heldur áfram.

„Eftir því sem mér skilst gengur vinna við þau almennt vel í nefndum þingsins. Raunar má geta þess í framhjáhlaupi að meirihluti þessara mála var undirbúinn að verulegu leyti eða jafnvel fullkláraður í tíð fyrri ríkisstjórnar.

Eftir stendur þá spurningin um þau 15-16 stjórnarfrumvörp, sem forsætisráðherrann segir að ríkisstjórnin hafi afgreitt til þingsins, en ekki hafa verið lögð þar fram. Hvaða mál eru þetta? Hvar eru þau á vegi stödd? Hvenær er von á þeim inn í þingið? Hefur ríkisstjórnin hugsanlega verið of fljót á sér að tilkynna um afgreiðslu einhverra þeirra og tekið þau aftur til frekari vinnslu? Liggja þau hugsanlega óafgreidd hjá þingflokkum stjórnarflokkanna?“ spyr Birgir Ármannsson þingmaður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert