Börnin á Akureyri tóku daginn snemma að venju og bjuggu sig undir að ganga á milli fyrirtækja og syngja í von um að fá góðgæti að launum. Að vanda fóru krakkarnir fyrst í ýmis iðn- og þjónustufyrirtæki þar sem starfsmenn koma til vinnu í bítið en reikna má með að um kl. 9 fjölgi verulega í miðbænum þegar verslanir verða opnaðar.
Löng hefð er fyrir því að halda öskudaginn hátíðlegan á Akureyri og elsta áreiðanlega heimildlin fyrir því að kötturinn hafi verið sleginn úr tunnunni í bænum er frá árinu 1867.
Starfsmenn Norðurorku sjá um að halda þeirri hefð við, eins og þeir hafa gert árum saman; kötturinn verður sem sagt sleginn úr tunnunni á Ráðhústorgi, og hefst sú athöfn kl. 10.30. Síðan verður annar köttur sleginn úr annarri tunnu á Glerártorgi kl. 13.30. Kettir þurfa þó ekkert að óttast; langt er síðan þeim var skipt út fyrir eitthvað annað í þessu sambandi.