„Ef peningastefnunefnd metur það svo að alvarleg hættumerki séu til staðar sem ógni fjármálakerfinu skal hún gefa út viðvaranir þegar tilefni eru til.“ Þetta er setningin sem bætt var inn í frumvarpið um Seðlabanka Íslands sem í kvöld afgreitt frá viðskiptanefnd Alþingis.
„Skynsemi og fagleg sjónarmið höfðu vinninginn í þessari orrahríð,“ sagði Höskuldur Þórhallsson, annar tveggja Framsóknarmanna í viðskiptanefnd, í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins. Hann kom í veg fyrir að málið kæmist úr nefnd og til þriðju umræðu í byrjun vikunnar. Vildi þá bíða eftir skýrslu sem von var á frá Evrópusambandinu og segir að í skýrslunni, sem nefndarmönnum var kynnt í dag, sé einmitt lagt til það atriði sem bætt hefur verið í frumvarpið. „Það er skýr tillaga um þetta í skýrslunni, sem eitt af því sem gæti komið veg fyrir svona bankahrun aftur.“
Höskuldur leggur áherslu á að þannig er ekki tekið til orða í frumvarpinu að nefndinni sé heimilt að gefa út viðvörðun, heldur skuli hún gera það, við ákveðnar aðstæður.