Borgin fær milljarð að láni

Reykjavík.
Reykjavík.

Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í dag að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 1 milljarð króna til 10 ára. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, að því er kemur fram í fundargerð borgarrráðs. 

Birgi Birni Sigurjónssyni, fjármálastjóra Reykjavíkur, var veitt umboð til að semja nánar um lánskjör og undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga s með fyrirvara um samþykki borgarráðs.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert