Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokks, sakaði forseta Alþingis um valdníðslu þegar hann ákvað ítrekað sl. mánudag að fresta þingfundi vegna deilna um afgreiðslu seðlabankafrumvarpsins í viðskiptanefnd þingsins.
Sagði Höskuldur að þingið hefði beðið mikinn hnekki þegar forseti þingsins ákvað að stöðva lýðræðislega umræðu sl. þingfundur var stöðvaður. „Þetta er einhver grófasta misbeiting á valdi í sögu íslenska lýðveldisins," bætti hann við.
Höskuldur sagði, að þjóðin hefði lengi mátt þola illdeilur tveggja fylkinga, sem hafi barist um völdin í landinu. Þessar illdeilur hefðu m.a. birtst í fjölmiðlamálinu svonefnda, Baugsmálinu, málefnum RÚV ohf. og nú seðlabankamálinu.
„Kannski eiga þessar illdeilur stóran þátt í þeim vanda, sem þjóðin glímir við í dag og því hruni, sem orðið hefur hér í efnahagskerfinu," sagði Höskuldur og bætti við að hann tæki ekki lengur þátt í þessum skrípaleik og þjóðin væri búin að fá nóg. „Við á sem erum Alþingi eigum að hefja okkur upp yfir einhverjar illdeilur úti í samfélaginu og berjast fyrir því að mál séu unnin faglega frá upphafi til enda," sagði Höskuldur.