Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar og Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs og formaður norska verkamannaflokksins munu funda síðdegis í dag í húsakynnum Bláa Lónsins.
Á fundinum munu formenn þessara systurflokka ræða fjármálakreppuna, sýn jafnaðarmanna á leiðir til úrbóta og samstarf norrænna jafnaðarmanna á breiðum grundvelli, að því er kemur fram í tilkynningu frá Samfylkingunni.