Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, boða til fréttamannafundar á morgun, laugardag kl. 11, um framboðsmál vegna Alþingiskosninga 2009.
Frestur til að tilkynna framboð á vegum Samfylkingarfélaganna í Reykjavík rennur út á morgun en hvorki Ingibjörg né Jóhanna hafa tilkynnt um framboð. Fundurinn verður haldinn í kosningamiðstöð Samfylkingarinnar á Skólabrú.