Búnaðarþing sett á morgun

Merki Bændasamtakanna
Merki Bændasamtakanna

Búnaðarþing hefst á morgun.  Yfirskrift setningarathafnarinnar verður „Treystum á landbúnaðinn“. Emma Eyþórsdóttir dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands flytur hátíðarræðu og Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra flytur ávarp og veitir landbúnaðarverðlaunin.

Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, mun setja þingið sem hefst sunnudaginn 1. mars klukkan 13.30 í Súlnasal Hótels Sögu. Eyfirski kvennakórinn Embla mun syngja undir stjórn Roars Kvam. Sömuleiðis mun tríó skipað þeim Patrycju B Szalkowicz Mochola, Elvu Björk Magnúsdóttur og Ingileif Egilsdóttur flytja nokkur lög. Allir bændur eru boðnir velkomnir á setningarathöfn þingsins.

Búnaðarþing verður nú degi styttra en venjulega og lýkur á miðvikudag. Þingfundur hefst strax eftir setningarathöfnina. Talsverður fjölda mála liggur fyrir þinginu og má búast við að umræður um Evrópusambandsmál verði fyrirferðarmiklar. Búnaðarþing ályktaði síðast sérstaklega um mögulega aðild að Evrópusambandinu árið 2003.

Á vefnum bondi.is segir að ljóst sé að allur þorri bænda leggist einarður gegn aðild „og í ljósi umræðu um málið á síðustu misserum mun Búnaðarþing taka til þess afstöðu á nýjan leik. Jafnframt má gera ráð fyrir að umfangsmikil umræða fari fram um rekstrarumhverfi íslensks landbúnaðar en þar er rekstrarvandinn verulegur nú um stundir.“

Fyrir þinginu liggja mál sem fjalla um Bjargráðasjóð, búnaðargjald, raforkuverð og fjármagnskostnað auk annarra tengdra mála.

Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtakanna.
Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtakanna.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert