Þrír Strandamenn taka nú þátt í Vasagöngunni í Svíþjóð. Í henni eru gengnir 90 km. á skíðum milli Sälen og Mora. Keppnin hófst í morgun. Strandamennirnir eru þeir Birkir Þór Stefánsson, Ragnar Bragason og Rósmundur Númason.
Á síðunni strandir.is eru tenglar þar sem hægt er að fylgjast með göngumönnunum. Þar má sjá tíma, sæti, meðalhraða og millitíma á nokkrum stöðum á leiðinni.
Frétt stranda.is um Vasagöngumennina