Enginn gekkst við akstrinum

Kirkjan á Kotströnd.
Kirkjan á Kotströnd.

Þrennt er í haldi lögreglunnar á Selfossi vegna gruns um ölvunarakstur síðdegis í gær en lögreglunni barst tilkynning um útafakstur á Suðurlandsvegi við Kotströnd um klukkan kvöldmatarleyti í gær. 

Þegar lögregla kom á staðinn var fólkið, tveir karlmenn og ein kona, komið út í bílnum og voru öll ölvuð.  Enginn gekkst við akstrinum og því var fólkið handtekið.  Yfirheyrslur munu fara fram í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert