Karlmaður, sem var handtekinn eftir að hafa klippt gat á ytri varnargirðingu fangelsisins á Litla-Hrauni aðfaranótt sunnudagsins, hefur játað verknaðinn en bar við yfirheyrslur, að óminnishegri hefði sótt að honum og því gæti hann ekki útskýrt ástæðu þess að hann klippti á girðinguna.
Lögreglan segir, að gatið hafi ekki verið það stórt að hægt hafi verið að fara þar í gegn. Maðurinn má búast við að verða ákærður fyrir eignaspjöll.