Fjórtán ára nemandi Grunnskólans í Sandgerði varð fyrir fólskulegri árás skólafélaga sinna fyrir helgi. Að sögn Ríkisútvarpsins er drengurinn mikið slasaður en hann fékk heilahristing, missti heyrn á öðru eyra og tennur losnuðu.
Haft er eftir Fanney Halldórsdóttur, skólastjóra Grunnskólans í Sandgerði, að máli drengjanna, sem gerðu árásina, verði vísað til skólaráðs og þaðan sem það fer til barnaverndarnefndar. RÚV segir, að einn drengjanna hafi verið valinn íþróttamaður Sandgerðis í fyrra fyrir góða frammistöðu í ólympískum hnefaleikum.
Þá var haft eftir aðstandendum drengsins, sem ráðist var á, að hann hafi verið að spila við félaga sína í skólanum i hádegishléinu á föstudag þegar þrír skólafélagar hans veittust að honum. Tveir þeirra börðu hann í höfuð og bak en sá þriðji hafðist lítt að. Þegar barsmíðarnar höfðu staðið um stund tókst tveimur skólaliðum að skilja drengina að.
Árásin hefur verið kærð til lögreglu.