Rannsóknarnefndir sjóslysa, umferðarslysa og flugslysa verða sameinaðar í rannsóknarnefnd samgönguslysa frá og með 1. janúar 2010, samkvæmt frumvarpi samgönguráðherra.
Markmið frumvarpsins er að efla og bæta slysarannsóknir á Íslandi með það að leiðarljósi að auka öryggi í samgöngum. Með sameiningu rannsóknarnefndanna í eina er leitast við að ná fram hagræðingu og efla um leið rannsókn samgönguslysa og styrkja starfsmenn annars mjög fámennra nefnda í einstökum slysaflokkum svo þeir hafi stuðning og styrk hver af öðrum við stærri rannsóknir.
Þá er ráðgert að fela nefndinni einnig aukin verkefni er lúta að skráningu og greiningu samgönguslysa og samgönguatvika og að annast gerð sérstakrar áætlunar um aðstoð til þolenda samgönguslysa og aðstandenda þeirra sem farast í samgönguslysum, í samvinnu við hagsmunaaðila og aðrar opinberar stofnanir.
Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir rannsóknarnefndin lúti stjórn formanns sem ráðherra skipar til fimm ára í senn. Formaður ber ábyrgð á og stjórnar daglegum rekstri stofnunar, þar á meðal fjárreiðum hennar, og gætir þess að reksturinn sé í samræmi við gildandi lög og reglugerðir.
Ráðgerðir eru tveir möguleikar við uppbyggingu nefndarinnar. Annars vegar að nefndin verði skipuð fimm mönnum, þar af einum formanni auk fjögurra varamanna og hinsvegar að nefndin verði skipuð fimm mönnum, þar af einum formanni auk faghóps tólf sérfræðinga sem væri nefndinni til aðstoðar við rannsókn.
Rannsóknir samgönguslysa eru í höndum Rannsóknarnefndar samgönguslysa sem annast rannsókn á einstökum slysaflokkum. Rannsóknarstjórar stýra rannsóknarverkefnum í umboði og á ábyrgð nefndarinnar. Þrír nefndarmenn skulu taka þátt í rannsókn hvers máls auk viðkomandi rannsóknarstjóra hverju sinni. Rannsóknarnefndin skal starfa sjálfstætt og óháð stjórnvöldum.
Í frumvarpinu eru ýmis nýmæli sem rekja má til þjóðréttarlegra skuldbindinga sem innleiddar eru. Meðal slíkra nýmæla eru ákvæði er lúta að tilkynningum til erlendra stjórnvalda í kjölfar slyss, ákvæði um þátttöku erlendra ríkja í rannsókn máls, ákvæði um varðveislu rannsóknargagna, ákvæði um tilkynningu til yfirvalda, komi upp grunur um að beitt hafi verið ólögmætum aðgerðum gegn öryggi samgangna og ákvæði um öflun ferðrita úr erlendu loftfari sem lendir hér á landi.
Í frumvarpinu er ennfremur fjallað um heimildir til endurupptöku máls og sérstakar rannsóknir. Þá er nýmæli ákvæði er fjallar um heimild ráðherra til að fela rannsóknarnefndinni að annast skráningu samgönguslysa og alvarlegra samgönguatvika.
Loks er nýmæli sem kveður á um áætlun um aðstoð við þolendur og aðstandendur þeirra sem farast í samgönguslysum. Í frumvarpinu er ráðgert að Rannsóknarnefnd samgönguslysa verði falið að annast gerð slíkrar áætlunar í samstarfi við þá fjölmörgu hagsmunaaðila og opinberar stofnanir sem koma þurfa að slíkri áætlun.
Frumvarpið hefur nú verið sent til umsagnar en umsagnarfresti lýkur 1. apríl 2009.