Umferðartafir eru nú á Hafnarfjarðarvegi til móts við Kópavogshælið vegna elds sem kom upp í bíl eftir árekstur tveggja bíla á leið til Reykjavíkur.
Lögregla og slökkvilið eru komin á vettvang og er umferð beint um aðra akreinina. Þá hefur verið farið með ökumann bílsins sem að ekki kviknaði í á sjúkrahús vegna meiðsla.