Allt hefur verið með kyrrum kjörum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í
dag, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Alls hafa 18 Vítisenglar (Hells Angels) meðlimir verið stöðvaðir undanfarna daga og eru þeir farnir úr landi. Umferð um flugstöðina hefur gengið vel og tíðindalítið fyrir sig. Vítisenglarnir eru boðsgestir vélhjólaklúbbsins Fáfnis sem ætla að fagna nýju húsnæði samtakanna í Hafnarfirði.
Veisluhöld Fáfnismanna eiga að fara fram í dag og ekki er annað vitað en að þau séu á áætlun.