Ekkert ólöglegt samráð hjá BÍ

Þorkell Þorkelsson

Bændasamtök Íslands telja sig ekki hafa brotið samkeppnislög, samkvæmt yfirlýsingu frá Haraldi Benediktssyni, formanni samtakanna. Nýlega úrskurðaði Samkeppniseftirlitið að samtökin skyldu greiða tíu milljóna króna stjórnvaldssekt fyrir ólöglegt verðsamráð.

Stjórn Bændasamtakanna mun á næstu dögum fara yfir úrskurðinn og ákveða í framhaldi hver viðbrögðin verða, segir í tilkynningunni.

Upphaf málsins var frétt birtist í Morgunblaðinu á síðasta ári, um Búnaðarþing ársins 2008. Á þinginu kom fram að verðhækkun á matvöru hjá búvöruframleiðendum væri óumflýjanleg vegna ytri aðstæðna. Í Morgunblaðinu bentu bændur á þær gríðarlegu verðhækkanir sem þá voru orðnar á heimsmarkaði á aðföngum, s.s. áburði og fóðurbæti, eldsneyti og fleiru.

„Þar var einnig bent á þau áhrif sem þessar hækkanir myndu hafa á rekstur og afkomu bænda og allt sem þar var sagt er komið fram, því miður. Bændasamtökin hafna því að almennar umræður um stöðu og framtíðarhorfur íslenskra bænda geti valdið neytendum tjóni, eins og fram er haldið í úrskurði Samkeppniseftirlitsins. Samtökin eru einnig ósammála framangreindri niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins, fyrst og fremst vegna eðlis B.Í. sem í áratugi hafa starfað af heilindum fyrir neytendur og bændur,“ segir Haraldur.

Áburður er meðal þeirra aðfanga sem hefur margfaldast í verði …
Áburður er meðal þeirra aðfanga sem hefur margfaldast í verði fyrir bændur og valdið þeim rekstrarerfiðleikum. Kristján Kristjánsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka