Landspítali hefur gert nýtt skipurit og auglýst eftir framkvæmdastjórum sex klínískra sviða.
Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítala, segir að helstu markmiðin með nýja skipuritinu séu aukið vægi þjónustu við sjúklinga, stuttar boðleiðir og skýr ábyrgð. Gert sé ráð fyrir meiri dreifingu ábyrgðar og áhersla verði lögð á að ábyrgð og völd fari saman. „Nýrra framkvæmdastjóra bíða krefjandi og spennandi verkefni, enda eiga störf þeirra að leiða til skilvirkrar þjónustu við sjúklinga, eflingar kennslu og vísindastarfs og bestu nýtingar fjármagns, sjúklingum og öllum almenningi til hagsbóta,“ segir Hulda Gunnlaugsdóttir á vef Landspítala.