Harður árekstur varð milli þriggja bifreiða á Njarðarbraut á móts við ÓB klukkan hálffjögur í dag. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum voru ökumenn bifreiðanna tveggja fluttir með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en fengu að fara heim að lokinni skoðun. Bifreiðarnar voru fluttar af vettvangi með kranabifreið.