Segir hættu á kerfishruni

Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði við utandagskrárumræður um stöðu efnahagsmála, sem nú stendur yfir á Alþingi, að raunveruleg hætta væri á kerfishruni og jafnvel upplausn í samfélaginu ef ekki næðist samstaða um nauðsynlegar efnahagsaðgerðir. Utandagskrárumræðan fer fram að ósk Birkis Jóns, sem sagði að ráðast þyrfti í róttækar aðgerðir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert