Stjórn kvennahreyfingar Samfylkingarinnar segir, að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi lagt gríðarlega mikið af mörkum til íslenskrar kvennabaráttu og unnið óeigingjarnt og fórnfúst starf í þágu íslenskra kvenna.
„Hún var afar farsæll borgarstjóri í Reykjavík í 10 ár, þar sem mikil áhersla var lögð á réttindi kvenna og Grettistaki var lyft í að breyta stjórnsýslunni í takt við nýja tíma. Árangur náðist í að minnka launamun kynjanna og í hennar borgarstjóratíð varð mikil umbreyting í menntunar – og vistunarmálum ungra barna til hins betra. Leikskólabylting átti sér stað og skólar voru einsetnir. Sem formaður Samfylkingarinnar hefur Ingibjörg Sólrún lagt mikla áherslu á að byggja flokkinn upp og gera hann að þeim stóra og sterka jafnaðarmannaflokki sem Samfylkingin er í dag. Hún braut i blað þegar hún leiddi Jóhönnu Sigurðardóttur til embættis forsætisráðherra, fyrsta íslenskra kvenna," segir m.a. í ályktun kvennahreyfingarinnar.