Bilanir í síma og tölvukerfum

AP

Bilanir eru í tölvukerfi menntasviðs Reykjavíkurborgar og tölvupóstkerfi leik- og grunnskólanna í Reykjavík. Hefur bilunin í tölvukerfinu m.a. áhrif á símakerfi menntasviðs. Hún hefur þó ekki áhrif á símasamband við skólana. Unnið er að viðgerðum og er vonast til að þeim ljúki í dag.

Bilanirnar hafa samkvæmt upplýsingum mbl.is mikil áhrif á samskipti starfsfólks grunnskólanna, bæði við foreldra og innan starfsmannahópa skólanna. Þá er tölvukerfið Mentor mjög seinvirkt.

Bilanirnar urðu í kjölfar rafmagnsleysis á föstudag og hafa tölvukerfi menntasviðs verið mjög seinvirk síðan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert