Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag frumvarp Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra um stofnun hlutafélags í eigu ríkisins til að stuðla að endurskipulagningu þjóðhagslegra mikilvægra atvinnufyrirtækja.
Hlutafélagið verður rekið tímabundið og er stofnun þess í samræmi
við þær tillögur sem endurreisnarnefnd bankakerfisins hefur áður gert
grein fyrir.
Ríkisstjórn samþykkti jafnframt frumvarp
fjármálaráðherra um breytingu á lögum um tekjuskatt og vaxtabætur sem
miðar að því að hækka greiðslur vaxtabóta vegna skuldastöðu heimilanna.
Fjármálaráðherra kynnti jafnframt hugmyndir um frekari ráðstafanir til greiðsluaðlögunar fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Ríkisstjórnin ræddi jafnframt aðrar aðgerðir í þágu heimilanna sem í undirbúningi eru.