Áfram mótmælt á Austurvelli

Frá mótmælunum á Austurvelli.
Frá mótmælunum á Austurvelli. mbl.is/Ómar

Samtökin Raddir fólksins standa fyrir útifundi á Austurvelli nk. laugardag, undir yfirskriftinni „Breiðfylking gegn ástandinu“. Þetta er 23. vika útifundanna og 29. fundurinn á Austurvelli, segir í tilkynningu.

Kröfur samtakanna eru skýrar:

1. Frystum eignir fjárglæpamanna
2. Afnemum verðtrygginguna
3. Færum kvótann aftur til þjóðarinnar  

„Raddir fólksins eru óflokkspólitísk samtök sem byggja á sjálfsprottnu og ólaunuðu framtaki Íslendinga sem blöskrar aðför bankastjórna, fjárglæpamanna og stjórnmálamanna að sjálfstæði þjóðarinnar,“ segir í tilkynningu.

Ræðufólk dagsins er:

Hjálmar Sveinsson, útvarpsmaður
Aðalheiður Ámundadóttir, laganemi

Fundarstjóri: Gunnar Sigurðsson


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert