Hún varð heldur fámenn í gærkvöldi, blysförin sem boðað var til svo þrýsta mætti á Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um framboð til formannsembættis Samfylkingarinnar. Þórhallur Vilhjálmsson markaðsfræðingur boðaði til göngunnar með skömmum fyrirvara í gær en enginn mætti til að ganga með honum aðrir en blaðamenn og ljósmyndarar.