Bensínorkan lækkar í dag bensín um 2 krónur og dísil um 2,6 krónur. Almennt verð á bensíni verður þá 139,70 krónur og almennt verð á dísil 149,90 lítrinn. Skeljungur hefur einnig lækkað verð á eldsneyti, bensín um 1,50 krónur lítrann og dísil um 2,70 krónur lítrann. Kostar bensínlítrinn hjá Skeljungi nú 141,90 krónur og dísillítrinn 151,90 krónur.
Fjögur olíufélög hafa því tilkynnt um verðlækkun á eldsneyti í dag.
Nánari upplýsingar um eldsneytisverð er að finna hér