Viðgerðarmönnum hefur ekki tekist að komast á Laugarbakka til viðgerða vegna veðurs, en bilun kom upp í stofnneti Mílu á Norðurlandi og var bilunin staðsett á Laugarbakka. Beðið verður eftir að veður skáni svo hægt verði að komast af stað. Því er þess ekki að vænta að viðgerð ljúki alveg í bráð.