Lokahátíð Stóru upplestarkeppninnar í Hafnarfirði fer fram í Hafnarborg í dag kl. 17. Þar munu tveir fulltrúar úr 7. bekkjum í öllum grunnskólum í Hafnarfirði og Álftanesi vera með upplestur úr verkum Brynhildar Þórarinsdóttur og Arnar Arnarsonar.
Auk þess verða tónlistaratriði flutt á hátíðinni og kynnt úrslit í smásögusamkeppni 8.-10. bekkja í grunnskólum Hafnarfjarðar.
Nemendur í 7. bekkjum grunnskólanna hafa frá því þann 16. nóvember sl. æft sig í flutningi íslensks máls. Þeirri æfingu lauk með lokahátíðum í hverjum skóla í lok febrúar og byrjun mars þar sem tveir fulltrúar voru valdir til að keppa á lokahátíðinni í Hafnarborg.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson mun verða viðstaddur keppnina.