Landsbankinn hefur staðfest orð Björgvins G. Sigurðssonar, alþingismanns um að bankinn hafi aldrei afskrifað neinar kröfur á Björgvin. Þetta kemur fram á fréttavefnum Sunnlendingur.is. Þar með hefur Landsbankinn staðfest orð Björgvins sem koma fram í grein sem hann ritaði og birt er í Morgunblaðinu í dag.
Í greininni í Morgunblaðinu vísar Björgvin alfarið á bug sögusögnum þess efnis að hann hafi fengið óeðlilega fyrirgreiðslu hjá fjármálastofnunum. Segist hann eingöngu hafa verið í viðskiptum við einn banka, Landsbankann, og þar hafi hann „... ekki fengið eina einustu krónu afskrifaða eða niðurfellda ...“ eins og hann orðar það í greininni.
Í grein Björgvins í Morgunblaðinu segir meðal annars:
„Um
helgina hringdi í mig vandaður maður og sagði mér að kosningasmalar
Sjálfstæðisflokksins hefðu sótt hann heim. Reynt að fá hann til að
kjósa í prófkjöri hjá Flokknum en hann sagði nei, hann styddi Björgvin
og Samfylkinguna og kysi ekki hjá öðrum. Þetta þóttu smölunum afleitt
að heyra. Björgvin væri ekki ekki hægt að kjósa þar sem hann hefði
fengið afskrifaðar 100 milljónir í bankakerfinu! Eitt hundrað
milljónir, takk fyrir.“