Hundurinn Þoka ferðast milli elliheimila og skemmtir öldruðu heimilisfólki. Þoka var á Hrafnistu í gær ásamt eiganda sínum og vakti talsverða lukku. Hún ætlar að koma þangað einu sinni í viku og keppir þar við harmónikkuspil, félagsvist, dans og annað sem íbúar gera sér til dægrastyttingar. Heimlisfólki fannst hundurinn spennandi, en sumir voru þó meira fyrir ketti. Sjá MBL sjónvarp.