Vantraust á forseta og samninganefnd ASÍ

Úr fiskvinnslu HB Granda en stjónr HB Granda leggur til …
Úr fiskvinnslu HB Granda en stjónr HB Granda leggur til að greiddur verði 8% arður. Kjarasamningsbundnum launahækkunum var hins vegar slegið á frest fram á sumar.

Drífandi stéttarfélag í Vestmannaeyjum lýsir yfir miklum vonbrigðum og vantrausti á störf forseta og samninganefndar ASÍ í aðdraganda endurskoðunar kjarasamninganna. Drífandi var eitt sex félaga sem var andvígt frestun launahækkana. Félagið vill að samkomulagi við Samtök atvinnulífsins verði þegar í stað rift og farið í viðræður við SA með nýrri samninganefnd.

Í ályktun Drífanda, sem birt er á eyjar.net segir að Drífandi fagni góðum uppgjörum sjávarútvegsfyrirtækja undanfarið. Staða margra fyrirtækja sé góð þrátt fyrir þrengingar í þjóðfélaginu. Það sýni að málflutningur þeirra sex stéttarfélaga er kröfðust þess að launahækkunin kæmi til framkvæmda 1. mars, hafi verið var hárréttur. Þá er vonbrigðum og vantrausti lýst á störf forseta og samninganefndar ASÍ í aðdraganda endurskoðunar kjarasamninganna.

„Sérstaklega er alvarlegt að einstakir aðilar innan samninganefndarinnar virðast hafa verið að gera samninga við fyrirtæki um launahækkanir til handa sínum félagsmönnum, en á sama tíma frestað gildistöku samninga annars launafólks í skjóli Alþýðusambandsins. Drífandi krefst þess að nú þegar verði sagt upp samkomulaginu við Samtök atvinnurekenda um frestun kjarasamninga og farið verði í viðræður við samtökin með nýrri samninganefnd,“ segir í ályktun Drífanda.

Eyjar.net

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert