Femínistafélagið fagnar aðgerðum og aðgerðaráætlunum ríkisstjórnarinnar sem miða að mótun réttláts samfélags á Íslandi. Hér ber að nefna áætlun um að taka upp kynjaða hagstjórn, fullgildingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, fullgildingu Palermo-bókunar Sameinuðu þjóðanna og síðast en ekki síst lokun nektardansstaða og bann við vændiskaupum.
„Allar þessar aðgerðir grundvallast á jafnrétti, virðingu fyrir mannréttindum og stuðla að því að hægt sé að byggja upp gott samfélag.
Það skýtur hins vegar skökku við að á sama tíma og yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar miðast við jafnrétti allra þegna þjóðfélagsins skuli vera skipað í mikilvægar nefndir og ráð þjóðarinnar á máta sem er á skjön við jafnréttislög.
Til þess að jafnræði endurspeglist í samfélaginu er grundvallaratriði að bæði kyn komi að allri ákvarðanatöku. FÍ skorar á ríkisstjórnina að endurskipa í bankaráð Seðlabanka Íslands og stjórnarskrárnefnd og virða þar með jafnréttislög."