Gagnrýna fréttaflutning

Mikið er um óseldar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Talsmenn MIH telja …
Mikið er um óseldar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Talsmenn MIH telja engu að síður umfjöllun fjölmiðla um stöðuna hafa verið of neikvæða. Þorkell Þorkelsson

Meistarafélagi iðnaðarmanna í Hafnarfirði (MIH) þykir umfjöllun fjölmiðla um fjölda óseldra íbúða í eigu verktaka á höfuðborgarsvæðinu síðustu misserin hafa verið of neikvæða. Almennur lesandi hafi túlkað þetta allt saman sem fullbúnar óseldar íbúðir, sem sé „mikil blekking“.

Gagnrýnir félagið meðal annars fréttaflutning Morgunblaðsins um fasteignamarkaðinn fyrr í vikunni.

Í tilkynningu frá félaginu sagði:

„MIH ætlar ekki í rökræður um það hve mikið hefur verið byggt umfram þarfir undanfarin misseri en bendir þó á að áætluð ársþörf fyrir nýjar íbúðir er um það bil 1.800.

Á síðasta aðalfundi Meistarafélags iðnaðarmanna í Hafnarfirði,13. febrúar sl., upplýsti formaður  í skýrslu sinni niðurstöður óformlegrar talningar á óseldum íbúðum í fjölbýli í Hafnarfirði. Einbýlishús, parhús og raðhús voru undanskilin. Samband hafði verið haft við alla verktaka og óskað upplýsinga um fjölda óseldra íbúða og staðfestinga leitað hjá fasteignasölum.“

Niðurstaðan hafi verið sú að fjöldi fokheldra íbúða í eftirtöldum hverfum hafi verið sem segir innan sviga.

Norðurbakkinn (95), Skipalón (0), Reykjavíkurv/Flatahr. (0), Ásland 3 (20), Vallarhverfi (113).

Sömu tölur fyrir fullbúnar íbúðir í sömu röð eru 99, 71, 22, 13 og 11.

Samtals gera þetta 228 í fyrri flokki og 216 í síðari flokki.      

Í tilkynningunni segir einnig:

„MIH telur rétt að geta þess að margar fullbúnu íbúðanna eru ekki tómar heldur eru þær komnar í leigu. Samt töldum við rétt að telja þær vegna þess að þær eru flestar á söluskrá.

MIH telur rétt að benda á að fokheldar íbúðir, sem til sölu eru í Áslandi 3 og í Vallarhverfi, eru flestar mjög hentugar fyrir „fyrstu íbúðar kaupendur". Það er hópur sem margir líta á sem aðal kaupendahópinn í dag. Því miður er samt mjög erfitt að nálgast fjármögnun til að klára þessar íbúðir, bæði vegna tregðu fjármálastofnana og eins gríðarlega hárra vaxta.

Mánudaginn 16. mars birtist grein í Mbl. þar sem stuðst var við talningu Ara Skúlasonar sem er frá mánaðamótum júní/júlí 2008. MIH telur alveg fráleitt að svo gömul talning stýri umræðunni um stöðu íbúðamarkaðarins. Margt hefur breyst á þeim tæplega níu mánuðum sem liðnir eru.“

Undir bréfið ritar Ágúst Pétursson, formaður MIH.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert