Hækkun lána myndi virka sem blóðgjöf

Hækkun hámarkslána Íbúðalánasjóðs myndi virka sem blóðgjöf fyrir bygginga- og …
Hækkun hámarkslána Íbúðalánasjóðs myndi virka sem blóðgjöf fyrir bygginga- og mannvirkjagerð í landinu mbl.is/RAX

Hækkun hámarkslána Íbúðalánasjóðs myndi virka sem blóðgjöf fyrir bygginga- og mannvirkjagerð í landinu og stuðla að því að koma hjólum atvinnulífsins af stað á ný. Þetta var meðal þess sem kom fram á fjölmennum fundi sem meistarafélög í bygginga- og mannvirkjagerð héldu með Óskari Bergssyni, formanni borgarráðs, og Kristjáni Erni Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Sameinaða lífeyrissjóðsins.

Í máli framkvæmdastjóra Sameinaða lífeyrissjóðsins kom fram að mikilvægt væri fyrir lífeyrissjóðina í því árferði sem við byggjum nú við að koma peningum inn í efnahagslífið. Sagði hann að um þessar mundir stæðu yfir viðræður við borgaryfirvöld um fjármögnunarþörf borgarinnar. Nefndi hann sem möguleika að stofnaður yrði sérstakur sjóður sem lífeyrissjóðirnir tækju þátt í og yrði notaður til að fjármagna framkvæmdir. Var samróma álit fundarmanna að slík lán yrðu notuð til nýbygginga og viðhalds en ekki í rekstur.

Formaður borgarráðs staðfesti að borgaryfirvöld og lífeyrissjóðirnir ættu í viðræðum og þá ætti borgin einnig í viðræðum við Evrópska þróunarbankann um aðkomu hans að fjármögnun verkefna á vegum borgarinnar. Hann sagði að allir samningar borgarinnar yrðu yfirfarnir og semja þyrfti upp á nýtt um marga þeirra, þá þyrfti að forðast að taka óraunhæfum tilboðum. Hann vakti athygli á að lífeyrissjóðirnir yrðu varla inni í myndinni nema lánskjör væru viðunandi.

Aðspurður sagði hann ljóst að borgin myndi bjóða út nýjar lóðir áfram, borgin þyrfti á því að halda. Þegar talið barst að fyrirhugaðri samgöngumiðstöð í höfuðborginni sagði formaður borgarráðs að viðræður væru í gangi við ríkisvaldið um staðsetningu hennar og vonaðist hann til að farsæl lausn fyndist fljótlega, að því er segir í tilkynningu.

Framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins sagði að um 8% af eignum sjóðsins hefðu verið bankainnistæður um síðustu áramót og í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu væri nú verið að kanna hvort unnt væri að ná fram hagkvæmri langtímaávöxtun þess fjár með þátttöku í arðbærum framkvæmdum. Þá væri stór hluti eigna sjóðsins í í auðseljanlegum verðbréfum og auðvelt væri að breyta hluta þeirra í peninga, sem mætti nýta í t.d. fjármögnun arðbærra framkvæmda.

Frá fundinum
Frá fundinum
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert