Kunnuglegur og kærkominn söngur barst mönnum til eyrna á Höfn í Hornafirði snemma í morgun og reyndist þar heiðlóan vera komin til landsins. Lóan var ein á ferð og flaug yfir Einarslund á Höfn syngjandi sitt fagra dirrindí og því greinilega komin í þeim erindagjörðum að boða komu vorsins að því er fram kemur á vefnum fuglar.is
Lóan er í fyrra fallinu í ár, en á síðustu 10 árum hafa þær fyrstu að jafnaði komið á bilinu 20. til 31. mars. Í byrjun mánaðarins bárust reyndar fregnir um að sést hefði til lóu við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi og á Hlíðsnesi á Álftanesi en talið er líklegast að þar hafi vetursetufuglar verið á ferð. Enginn vafi leikur hinsvegar á því nú að lóan er komin aftur til að njóta íslenska sumarsins, líkt og margir eru vafalaust byrjaðir að gera í huganum.